• Fálki

    ©Jóhann Óli Hilmarsson

  • ©Jóhann Óli Hilmarsson

  • ©Jóhann Óli Hilmarsson

  • ©Jóhann Óli Hilmarsson

  • ©Jóhann Óli Hilmarsson

  • ©Jóhann Óli Hilmarsson

  • Fálki – ungfugl

    ©Jóhann Óli Hilmarsson

Almennar upplýsingar

Fálki eða valur er stór og tígulegur ránfugl, með langa, breiða, odddregna vængi og langt stél, stærsti fugl fálkaættarinnar. Hann er breytilegur að lit, fullorðinn fálki er venjulega grár eða grábrúnn að ofan með hvítum doppum og rákum, ljósari að neðan, oftast hvítur eða ljósgulleitur með dökkum rákum og dílum. Höfuðið er meira eða minna rákótt, stundum með greinilegum skeggrákum. Stélið er þverrákótt. Karlfuglinn er venjulega ljósari, en kvenfuglinn stærri. Ungfugl er dekkri, stundum aldökkur með hreisturmynstri að ofan og rákóttur að neðan. Fullorðnir hvítfálkar eru alhvítir með dökka vængbrodda og rákir að ofan. Þeir eru árvissir gestir frá Grænlandi. Íslenskir fuglar geta þó verið mjög ljósir, þeir ljósustu eru nær hvítir á höfði og að neðan.

Fálkinn flýgur með hröðum, kraftmiklum vængjatökum, grípur oft til renniflugs, er hraðfleygur og mjög fimur á flugi. Fálkinn gefur frá sér hvellt væl á varpstöðvum en gargar reiðilega þegar hann er í árásarhug, er þó oftast þögull.


Fæða og fæðuhættir:
Aðalfæða fálkans er rjúpa, sem hann slær með klónum á flugi eða grípur á jörðu niðri. Veiðir flestar tegundir fugla, en það fer talsvert eftir veiðilendum hvaða bráð verður fyrir valinu, allt frá fullorðnum heiðagæsum niður í þúfutittlinga og auðnutittlinga, einnig hagamýs.


Fræðiheiti: Falco rusticolus

Kjörlendi og varpstöðvar

Verpur í klettum, t.d. giljum, gljúfrum, gjárveggjum, stöpum og gígum. Gerir sér hreiður með því að grafa skál á grasi gróinni syllu eða í skúta. Notar þó oftast gamla hrafnslaupa en byggir ekki hreiður sjálfur. Hjónin dvelja á óðalinu árið um kring. Verpur dreift um land allt en er algengastur í Þingeyjarsýslum. Aðalfæða fálkans er rjúpan og fylgir varpstofn hans sveiflum í rjúpnastofninum.


Varp- og ungatímabil


Dvalartími á Íslandi

Útbreiðsla og ferðir

Fálkinn er staðfugl. Hann verpur dreift um land allt en er algengastur í Þingeyjarsýslum. Aðalfæða fálkans er rjúpan og fylgir varpstofn hans sveiflum í rjúpnastofninum, en er hnikað þannig að mest er um fálka um þremur árum á eftir hámarki í stofnstærð rjúpu. Heimkynni hans eru allt umhverfis norðurheimskautið. Fálkinn var konungsgersemi fyrr á öldum og um tíma í skjaldarmerki Íslands.

Varpstöðvar
Vetrarstöðvar
Litaskýringar

EGG

HREIÐUR

UNGAR