• Bjargdúfa

    ©Jóhann Óli Hilmarsson

  • ©Jóhann Óli Hilmarsson

  • ©Jóhann Óli Hilmarsson

  • ©Jóhann Óli Hilmarsson

  • ©Jóhann Óli Hilmarsson

Almennar upplýsingar

Bjargdúfa er gráblá, með gljáandi grænar og purpuralitar hálshliðar. Hún er með hvítan yfirgump, dökka rák á jaðri stéls og tvær svartar vængrákir. Ungfugl er brúnni, án gljáa á hálshliðum. Dökkar bjargdúfur eru líka til. Húsdúfan er afkomandi bjargdúfunnar. Hún er til í mörgum litum, t.d. hvít, alsvört og brún, og til eru ýmis ræktuð afbrigði. Dökkar bjargdúfur eru líka til. 



Dúfur svífa oft með vængina uppsveigða. Gefa frá sér malandi kurr.


Fæða og fæðuhættir:
Aðallega frææta, fer gjarnan í kornakra, en tekur einnig arfafræ, sprota, ber og smáskordýr á jörðu niðri. Kemur einnig í fóður, þar sem fuglum er gefið kornmeti.


Fræðiheiti: Columba livia

Kjörlendi og varpstöðvar

Bjargdúfa verpur í klettaskútum, hreiðrið er grófgert, úr sprekum og gróðri. Þær halda til á varpstöðvunum á veturna, en sjást þó oft við bæi og þéttbýli. Húsdúfa lifir í þéttbýli og verpur á húsum.


Varp- og ungatímabil


Dvalartími á Íslandi

Útbreiðsla og ferðir

Bjargdúfan er staðfugl. Til skamms tíma urpu bjargdúfur í klettum á nokkrum stöðum á Austurlandi, frá Berufirði norður í Norðfjörð. Uppruni þeirra er óviss, þær gætu verið afkomendur húsdúfna sem hafa lagst út og/eða bjargdúfna sem hafa flækst hingað, en þær verpa m.a. í Færeyjum og á Skotlandi. Á undanförnum árum hefur útbreiðsla þeirra færst suður til Hornafjarðar og til vesturs á sunnaverðu landinu og nær hún nú alla leið í Mýrdal, undir Eyjafjöll, til Vestmannaeyja og í Ölfus. Þessi útbreiðsluaukning er talin fylgja aukinni kornrækt. Húsdúfa verpur á helstu þéttbýlisstöðum landsins og dreift á sveitabæjum. Töluvert hefur verið herjað á hana á síðustu árum og hefur henni fækkað mikið í Reykjavík.

Varpstöðvar
Vetrarstöðvar
Litaskýringar

EGG